halló halló!
veit ekkert um hvað ég á að blogga en.. ég er nú samt í einhverju bloggstuði og ég get sagt ykkur það, það skeður ekki oft!! 
Ég var að skoða blaðið um daginn og ég bara næ ekki að gleyma þessari frétt.
Það var 89 ára gamall maður sem var að kaupa sér glænýjan SUPARU IMPREZU! jáá þið lásuð rétt! Þegar maður hugsar um 89 ára gamalt fólk þá sér maður fyrir sér fólk á elliheimili en ef það á að vera á bíl þá ætti það að vera á Lödu, sammála?

Finnst ekki ykkur hægri myndin passa betur við?? þetta er bara einhvern vegin rangt fyrir gamla kalla að vera á Imprezum
kannski er það bara ég
En jáá nú fer að styttast í prófin!! shjiiii sko!
bara nokkrir dagar eftir af skólanum og mér finnst ég ekkert hafa lært!
en vonandi munu þessi blessuðu próf reddast
Ef ég fæ að sleppa við söguprófið þá byrja ég ekki í prófum þá mun ég ekki byrja í prófum fyrr en 10 des
en búin 14, þannig að það verða 4 próf í röð. Þannig að þetta er ekkert fráábært, þar sem ég hef engann sjálfsaga í að læra þessa 10 daga sem ég er í fríi!!

Síðan verð ég bara að deila með ykkur einni af minni sérstökustu lífsreynslum sem ég og hildur hanna lentum í á laugardagskvöldið
Þannig er mál með vexti að ég og hildur fórum í Þjóðleikhúsið að sjá Leg. Og ég ákvað að leggja bílnum á menntamálaráðuneytisplaninu(vá hvað þetta er langt orð
) en allavegna!!
Þegar við vorum að fara þá var bílinn frosinn og ég gat ekki opnað hann, frábært. Og hildur hanna alveg að missa sig því henni var svo kalt þannig að hún fór að blása í lyklagatið en ekkert virkaði. Þetta var orðið svona semí vandræðalegt en þá birtist allí einu einhver kall sem sagði að hann ætti svona frostlög til að laga þetta litla vandamál. Við komumst að því að hann var næturvörðurinn í menntamáluráðuneytinu. Mjööög svo spes maður og mjööög einmanna. Og mann sagði okkur bara að koma með sér inn í húsið. Ég hélt að við þyrftum nú ekki að fara lengra en á fyrstu hæð en nei nei, þetta voru örugglega svona 5 hæðir eða e-d! mér var nú ekki farið að litast á blikuna. Beið bara eftir því að við yrðum drepnar. Sá fyrir mér fyrirsögninga í DV: 2 systur myrtar í menntamáluráðuneytinu.
En það skeði nú sagt ekkert
enda var þessi maður mjöög,hvað getur maður sagt, saklaus e-d
hann bara talaði og talaði og talaði MEIRA! fór að tjá sig um að hann hefði nú séð fólk stunda mök hérna við húsið og svona.. mjög merkilegar upplýsingar! En svo á endanum þá komumst við looooksins í bílinn
Mér leið sko á tímabili eins og ég væri stödd í Næturvaktsþætti haha
þetta var jafn fáránlegt
En fólk! ég nenni ekki að blogga meir í bili, tel þetta vera nokk gott miðað við að ég blogga mjög sjaldan
-Ingan kveður í bili